Ískort er lítið sprotafyrirtæki sem hefur það að markmiðið að útbúa landakort úr stafrænum landupplýsingum.
Kortin eru til notkunar í hugbúnaðinum PDF-Maps, sem er frír hugbúnaður fyrir bæði Google Android og Apple iOS spjaldtölvur og síma. Kortin sjálf eru seld í gegnum vefkerfi PDF-Maps undir heitinu „Icelandic Maps
Í hverju fellst kortagerðin ?
Kortagerðin felst í því að notaður er landfræðilegur gagnagrunnur Landmælinga Íslands IS-50V. Í honum er meðal annars hæðarlíkan, hæðarlínur ,mannvirki ,örnefni , samgöngur, strandlína , vatnafar og yfirborð. Í kortagerðinni er einnig notað mjög nákvæmt hæðarlíkan af jöklum landsins, en líkanið er unnið af Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Þess til viðbótar er mikið safn gönguleiða og upplýsingum um staðsetningu skýli og skála notað.
Þegar gögnin eru lesin inn úr gagnagrunni, þá opnast þau öll sem flöt línugögn. Öll gögn líta eins út og ómögulegt er að aðgreina alla þætti þeirra gagna sem opnuð eru.
Útkoman, eftir að búið er að útbúa litakort og ákveða forgang og framsetningu þeirra gagna sem notað, er heildstætt landakort. Kortið er þá með útliti og áferð sem auðvelt er að lesa og skynja hvernig landið liggur. Einnig er auðvelt að sjá hvar vegir og aðrir manngerðir hlutir liggja á kortinu.
Hæðarlíkan
Hæðarlíkanið er gríðarlega mikilvægur þáttur í því að landakortið sem útbúið er sé auðvelt til notkunar og notandinn skynji landslagið vel.
Hæðarlíkan Landmælingum Íslands sem þekur allt landið í einni heild er notað sem grunnur.
Hæðarlíkan frá Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun HÍ, en í þeim gögnum er landlíkan unnið upp eftir Lidar (Laser) mælingum með upplausn upp á 2.5 metra, af jöklum landsins og þeirra næsta nágrenni. Hæðarlíkaninu er bætt ofan á grunnlíkanið frá Landmælingum.
Vinnslan sjálf.
Vinnslan við kortagerðina er margþætt og gagnamagn henni tengdri er mikil. Gögnum er raðað upp í ákveðinn forgang, úr þeim unnið lag, sem notað er svo áfram sem undirlag í næsta þrepi vinnslunnar. Þannig er kortið byggt upp koll af kolli, og á endanum er tilbúið landakort sem er útbúið fyrir vefkerfi PDF-Maps.
Hér til dæmis eru sýnd 4 grunnþrep, þar sem litaþema, yfirborð og áferð kortins er undirbúin áður en gögnum um manngerða hluti er varpað ofan á kortið
Litakort, unnið eftir upplýsingum um gróðurfar og yfirborð. Þar eru nokkrir tugir gerða yfirborðs raðað saman og leitast er við því að litir séu að sama skapi endurspeglun á náttúrulegum litum, en einnig til skýrar aðgreiningar á milli gróðurtegunda.
Náttúrulegt yfirborð og manngert yfirborð er unnið til með mismunandi hætti, þar sem aðgreining á hálendi, mosum og melum rennur meira saman en aðgreining á manngerðu gróðurfari svo sem skógrækt eða tún. Gögnum með vatnafari er einnig bætt ofan á þekjuna.
Grunnkortinu sem áður var útbúið, er varpað ofan á þrívíddarlíkan og við það koma fram skuggar í landslagið, en þeir auðvelda lestur á kortinu og gera notendanum kleift að sjá hvernig landið lyggur.
Að lokum er línugögnum varpað yfir landlíkanið, en í þeim er t.d upplýsingar um vegi, örnefni, býli og önnur mannvirki.
Útlitshönnun
Mesta vinnan fer í útlitshönnun sem hefur það að markmiði að kortið sé skýrt og auðvelt sé að nota kortið til leiðsögu.
Helstu atriði sem þarf að hanna útlit á eru
- Litaþema á yfirborði
- Hvaða gögn eru valin hverju sinni fyrir mismunandi kort
- Forgangur gagna, ákveða hvort hæðarlínur séu ofan á vatnafari, en undir vegaþekju
- Stilla af breidd línugagna, aðgreint t.d á milli þjóðvegar og fjallvega
- Framseting örnefna og texta, letur, liti, stærðir og forgangur örnefna eftir tengund
Heildstætt landakort, tilbúið til notkunar.
Nákvæmni gagna.
Í kortunum er gríðarlega nákvæmt hæðarlíkan af jöklum landsins. Gögnin koma að notkun við gerð sprungukorta og þau gefa einnig góða mynd af yfirborði jökla og nágrenni þeirra.
Landlíkan unnið upp eftir Lidar (Laser) og litakorti varpað yfir líkanið. Við það koma sprungur í jöklinum fram og hægt að sjá á kortinu sprungur og hættusvæði.
Með frekari úrvinnslu í á hæðarlíkani, er hægt að kalla fram hættusvæði á vélrænan máta, þar sem yfirborðshalli ákveður styrk fyrst guls og svo rauðs litar. Rauðu svæðin eru því mjög hættuleg, og þau gulu varasöm. Kort sem þetta auðveldar gríðarlega ákvörðun um leiðarval og mat á aðstæðum.
Gögnin á bakvið kortin
Ískort eru kort unnin árið 2013-2014 upp úr stafrænum kortagrunni Landmælinga Íslands – IS-50V.
Hæðargögn af jöklum eru frá Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun HÍ og eru þau af flestum jöklum með mikilli nákvæmni
Hugbúnaðurinn
PDF Maps hugbúnaðurinn er fáanlegur án endurgjalds í gegnum Apple iStore fyrir iPad og iPhone
Android er hægt að sækja Hér í Android Playstore
Í hugbúnaðinum er hægt að setja niður vegpunkta, mæla vegalengdir og skoða kortin. Þín staðseting er sýnileg og hægt er að sýna staðsetningu á myndum úr spjaldtölvunni
Nú í nýjustu útgáfunni af PDF-Maps er hægt að vista niður feril í .gpx og .kml skráargerðum, ásamt því að opna slíkar skrár.
Helstu verkefni til þessa
- Slysavarnarfélagið Landsbjörg – Sérverkefni –
Gögn frá Loftmyndum ehf – TK-50 , Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun HÍ
Kortagrunnur útbúinn til notkunar í hugbúnaðinum OziExplorer. Kortadreifing var útbúinn fyrir um tæplega 100 björgunarsveitir um allt land.
- Landhelgisgæsla Íslands, Þyrlusveit – Sérverkefni –
Gögn frá Sjómælingum (LHG), Landmælingum Íslands, Rarik, Landsnet, Mílu, Vodafone, Veðurstofu Íslands, Raunvísindastofnun HÍ og fleiri aðilum
Kortagrunnur útbúinn til notkunar í hugbúnaðinum OziExplorer. Kortadreifing var útbúinn til notkunar í þyrlum LHG.
- Almenn sala, – Kortagerð fyrir PDF-Maps hugbúnað í spjaldtölvum.
Gögn frá Landmælingum Íslands, Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun Háskóla Íslands
Kortagrunnur útbúinn til notkunar í spjaldtölvuhugbúnaði PDF-Maps (www.pdf-maps.com) en í hugbúnaðinum er hægt að velja ísland og kaupa kort af íslandi eða stökum landsdvæðum.
Upplýsingar
Kortagerð : Marteinn S. Sigurðsson
Útgefandi: Marteinn S. Sigurdsson
Grunnkort: IS-50V – Landmælingar Íslands
Yfirborð Jökla: Veðurstofa Íslands og Raunvísindastofnun HÍ
Icelandic Meteorological Office and Institute of Earth Sciences,
University of Iceland. 2013. DEMs of Icelandic glaciers (data set).
© Landmælingar Íslands V201306022
© Marteinn S. Sigurðsson – www.iskort.is
Fyrirvari
Allur réttur áskilinn
Notist til viðmiðunar á egin ábyrgð
All Rights Reserved
Use as a guide, at your own responsability
Nytjaleyfissamingur